tónlist og tækni

Bara ef vefurinn væri fegurri

11/12/2009

paperback
Sá þetta hér

Renndum okkur til Rennes (Ferðavideo)

08/12/2009

Ég fór með hljómsveitinni minni til Rennes í Frakklandi að spila á tónlistarhátíðinni Trans Musicales. Borgin er fögur og fólkið einnig. Tónleikagestir voru á bilinu 1000 til 1500 og dönsuðu flestir sem er auðvitað alltaf takmarkið. Ferðasagan verður að þessu sinni sögð með myndbandi.

Retro Stefson gerir allt aðeins betra

03/12/2009
Retro Stefson

Retro Stefson

Ó hve fínt þetta er!
FM Belfast – Frequency (Retro Stefson Shakemix)
FM Belfast – Par Avion (Retro Stefson Remix)

Góðar stundir.

Framtíðin er mótor músík

02/12/2009

Afar falleg útgáfa af Super Mario laginu á stepper mótora

Ógleymanleg útgáfa af Star Wars Death Star laginu á floppy drif

Vivaldi á ScanJet

Svo er það þetta Radiohead cover sem tekur kökuna.

Captain’s log stardate 0911.27

01/12/2009

Eftir frábæra ferð sit ég lasinn með chili hnetur og horfi á steiktustu mynd allra tíma: koyaanisqatsi. Mikið svakalega er þetta falleg mynd.

Myndir úr ferðinni okkar til Munchen.

Hér er svo Pete Doherty á hlaupum í leit að nýju sviði til að spila á eftir að hann hafði farið langt fram yfir tímann sinn.

FM Belfast í góðu glensi í Þýskalandi

28/11/2009

Við vorum að lenda hérna í München og þegar búin að raða í okkur mat og fara á jólamarkað. Þessi færsla verður fáorð en myndrík.

Árni Vil leikur súrar listir

Árni Vil leikur súrar listir

Þessi jólamarkaður var frábær.

Þessi jólamarkaður var frábær.

Lóa sló á létta strengi með frönskum kartöflum.

Lóa sló á létta strengi með frönskum kartöflum.

Glenskarið á fína hótelinu

Glenskarið á fína hótelinu

Ég á þessu yndislega hóteli

Ég á þessu yndislega hóteli

Dj Öfull

Dj Öfull

Stundir!

Heimagerður 555 timer synthi

27/11/2009

Stundum er gott að hafa hlutina einfalda og í þessari færslu ætla ég að segja ykkur frá einfaldasta syntha í Heimi.

Þessir hlutir eru nauðsynlegir til að smíða þennan syntha (hér er ég að giska á verð):

1 x 555 Timer IC (300 kr)
2 x 4.7kohm Viðnám (20 kr)
1 x 100 uF Þéttir (20 kr)
1 x Pezio electric hátalara (200 kr)
1 x 9v Rafhlaða (500kr)

555 Synth í sinni einföldustu mynd

555 Synth í sinni einföldustu mynd

Svo er bara málið að fikta í fyrra viðnáminu (efra á mynd), skipta þeim út fyrir önnur gildi t.d. 100Ohm, 470Ohm, 220Ohm eða setja breytilegt viðnám í staðinn.

Góðar stundir!

Arduino: ofurtækni fyrir tækniaula

23/11/2009

Með u.þ.b. $30 að vopni, smá kunnáttu í C++ og helling af tíma eru engin takmörk fyrir því hvað er hægt að gera með örgjörvanum. Kennsluefni fyrir Arduino er nánast allt frítt og krefst ekki verkfræðimenntunnar né menntunnar í forritun. Flestar síður sem fjalla um kubbinn eru á “mannamáli” og ættu að geta orðið öllum áhugasömum að gagni.

Arduino smátölva með 256k minni, 10 digital inn/út rásir og 4 analog inn rásir.

Arduino kubbur á Arduino bretti

Arduino kubbur á Arduino USB bretti

Kubburinn sjálfur

Kubburinn sjálfur

Einfaldar lýsingar á notkun:

Með brettinu fylgir USB snúra og slatti af prufukóða. Einfaldasta tilraunin sem hægt er að gera á brettinu er að láta LED ljósaperu blikka. Þetta er kannski ekki merkilegt en það er gott að byrja á einföldu verkefni.

Á þessari slóð eru leiðbeiningar fyrir fyrsta Arduino verkefnið þitt: http://www.arduino.cc/en/Tutorial/Blink

Hægt er að kaupa Arduino hér

null

Fyrsta Arduino verkefnið